Færsluflokkur: Bloggar
4.4.2008 | 00:51
Bjartsýni Íslendinga
Guðbjartur las frétt um bjartsýni Íslendinga í Times:
Óháð því hvort illa fer
áfram höldum bjartsýn;
Ísland væri eyðisker
ef við værum svartsýn.
Bjartsýna þjóðin í Atlantshafi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.4.2008 | 22:48
Forsetinn og CNN
Í frétt á CNN segir um Ólaf Ragnar Grímsson forseta vorn: "During his time in office he has overseen a transformation of the energy market in his homeland changing it from an economy mostly powered by coal and gas to one which is almost exclusively powered by renewable energy -namely hydroelectric and geothermal technologies."
Guðlaug fyllist aðdáun á forsetanum framtakssama á Bessastöðum:
Út hans spyrjast afrekin
enn var slegið metið;
fréttist brátt að forsetinn
fann upp Internetið?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.3.2008 | 10:25
Félagsþroski Íslendinga
Guðríður:
Ekki batnar ástandið
er það sem ég hafði grun um:
félagsþroskann fengum við
frá feðrum okkar víkingunum.
Fengu hamingjuna í arf frá víkingunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.3.2008 | 09:44
Engin yfirborðsmennska
Guðleifur las grein Jóns Baldvins í 24 stundum, þar sem hann skrifaði um Styrmi Gunnarsson, ritstjóra Morgunblaðsins:
Við, sem höfum rifist og rökrætt við hann í meira en hálfa öld, vitum að hann er rökfastur og fylginn sér; en hann hlustar og tekur rökum. Það eina sem hann þolir ekki er yfirborðsmennska, hégómaskapur, látalæti og uppskafiningur. Það er gagnlegt að vita fyrir þá, sem vilja reyna sig við hann.
Í stuttu máli segir Jón Baldvin:
Eg við Styrmi einatt þræti
ósköp vel hann þekki;
yfirborðsmennska og látalæti
líkar honum ekki.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.3.2008 | 14:18
Útrásarvíkingar
Guðbrandur:
Hörmungartíma á heimurinn í vændum
horfin á peningum, mönnum og guði trú,
Fyrr á öldum aðrar þjóðir við rændum
útrásarvíkingar gera það sama nú.
Íslandsbylgjan gæti skollið á mörgum löndum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.3.2008 | 22:41
Davíð aktaði
Guðjón:
Davíð á þessum drottins fagra degi aktaði,
en almennt í áliti lækkaði
af því hann vextina hækkaði.
Bloggar | Breytt 26.3.2008 kl. 11:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.3.2008 | 21:41
Forsetinn sleginn
Guðmundur:
Svona hljóðar færslan fyrsta
fáni að húni dreginn
Fólkið gleðst á Fróni nyrsta
en forsetinn er sleginn.
Bloggar | Breytt 26.3.2008 kl. 11:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)